|
03. ág. 2010 |
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í 13. sinn um verslunarmannahelgina. Aldrei hefur mótið verið jafn stórt og í ár og keppt var í fjölbreyttum greinum. Frá USAH voru skráðir 38 keppendur í frjálsíþróttum, fótbolta og sundi. Allir keppendur frá USAH stóðu sig með stakri prýði og voru félaginu til mikillar sóma. |
|
19. júl. 2010 |
Keppnisgreinar, keppnis fyrirkomulag og fleira er hægt að sjá hér.
Minni á að búið þarf að vera skrá sig fyrir miðnætti 23. júlí! |
|
12. júl. 2010 |
Héraðsmóti USAH þurfti að fresta miðvikudaginn 7. júlí vegna veðurs, en nú ætlum við að treysta á veðurguðina og halda seinni dag Héraðsmótsins , miðvikudag 14. júlí n.k., í sól og blýðu. Mótið hefst klukkan 18:00 og tímaseðill helst óbreyttur, en hægt er að sjá tímaseðilinn á usah.is. |
|
12. júl. 2010 |
Blönduhlaup verður haldið laugardaginn 17. júlí kl. 11:00 í tengslum við sumarhátíðina Húnavöku á Blönduósi. Sumarhátíðin Húnavaka er fjölskylduhátíð og því verður mikið um að vera á Blönduósi fyrir alla fjölskylduna þessa helgi. |
|
10. júl. 2010 |
Hérna er hægt að nálgast upplýsingar um afrek fyrri dags Héraðsmót sem var 6. júlí.
Fresta þurfti seinni degi til 14. júlí n.k. vegna veðurs. |
|
08. júl. 2010 |
Seinni dagur Héraðsmóts verður haldinn miðvikudaginn 14. júlí n.k. Fresta þurfti seinni degi mótsins vegna veðurs en nú vonum við að þetta gangi.
|
|
05. júl. 2010 |
Héraðsmót USAH verður 6. - 7. júlí. Hér geti þið séð tímatöflu Mótið er styrkt af Landsvirkjun og Samstöðu
Fyrri daginn er hægt að sjá hér neðar |
|
05. júl. 2010 |
Fyrri dagurHéraðsmót USAH verður 6. - 7. júlí.
Hér geti þið séð tímatöflu
Mótið er styrkt af Landsvirkjun og Samstöðu |
|
28. jún. 2010 |
Unglingalandsmótið verður að þessu sinni í Borgarnesi helgina 30. júlí – 1. ágúst. Þar geta öll börn á aldrinum 11-18 ára keppt í hinum ýmsu greinum. Þetta er fjölskylduhátíð sem hefur skapað sér hefð í kringum verslunarmannahelgi. Keppnisgreinar á landsmótinu eru eftirtaldar:
Frjálsar íþróttir, golf, glíma, hestaíþróttir, knattspyrna, körfuknattleikur, mótorcross, skák, sund og dans.
|
|
28. jún. 2010 |
Héraðsmótið verður haldið dagana 6. og 7. júlí n.k. á Blönduósvelli. Hefst mótið klukkan 18:00 báða dagana. Skráning á staðnum. |
|
23. jún. 2010 |
Frá ÍSÍ30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting. Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum. |
|
15. jún. 2010 |
93. ársþing USAH haldið á Blönduósi 13. mars 2010 samþykkir eftirfarandi reglugerð um héraðsmót USAH utanhúss í frjálsíþróttum |
|
09. jún. 2010 |
Ásta Berglind Jónsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdarstjóri USAH sumarið 2010. Skrifstofan, sem staðsett er á efri Samkaupa, verður opin milli 16:00 – 17:00 mánudaga - fimmtudaga. |
|
14. apr. 2010 |
Stjórnarfundur USAH 13. apríl kl. 20:00. Mættir: Greta, Aðalbjörg, Sigrún.
|
|
14. apr. 2010 |
Stjórnarfundur USAH 2. mars kl. 20:00. Mættir: Gunna, Fríða, Þórhalla.
|
|
14. apr. 2010 |
Formannafundur 2. febrúar 2010 haldinn á Hótel Blönduóss. Mættir: Aðalbjörg (Vorboðinn), Sigríður (Umf. B), Guðrún (Geislar) , Róbert (Fram), Ingibergur (Golfkl. Skagastr), Þórhalla (Hvöt) og Sigurlaug (Neisti).
|
|
14. apr. 2010 |
Stjórnarfundur USAH 12. Janúar kl. 20:00. Mættir: Sigríður, Gunna, Fríða, Þórhalla, Aðalbjörg, Sigrún.
|
|
22. mars 2010 |
Fundargerð þingsins í heild sinniFundargerð 93. Ársþings USAH er komin á netið. Mikið var skeggrætt á þinginu og tókst það í alla staði vel. Um ljúffengar veitingar sáu stöllurnar í Vorboðanum um og Valgarður Hilmarsson stjórnaði fundi af skörugleik. |
|
13. mars 2010 |
93. Ársþing USAH fór fram í dag í húsnæði Samstöðu á Blönduósi. Dagskrá þingsins var með hefðbundnu sniði eins og undanfarna áratugi. Fundarstjóri var Valgarður og stjórnaði þinginu. |
|
13. mars 2010 |
Haraldur Jóhannesson stjórnarmaður í UMFÍ kom færandi hendi á Ársþing USAH í dag er hann sæmdi 4 ritnefndarmenn Húnavökuritsins starfsmerki UMFÍ. Þetta voru þeir Guðmundur Unnar Agnarsson, Jóhann Guðmundsson, Magnús B. Jónsson og Páll Ingþór Kristinsson. |