Ýmsir tenglar


Ungmennafélag Íslads

Íþrótta og Ólimpíusmband Íslands

 
Sunnudagurinn 05. september 2010
Ağalsíğa  /  Fréttaleit  /   
Hlauparar að hefja Blönduhlaup
Hlauparar að hefja Blönduhlaup

Blönduhlaup 17. júlí

Blönduhlaup verður haldið laugardaginn 17. júlí  kl. 11:00 í tengslum við sumarhátíðina Húnavöku á Blönduósi. Sumarhátíðin Húnavaka er fjölskylduhátíð og því verður mikið um að vera á Blönduósi fyrir alla fjölskylduna þessa helgi.

Aldursflokkaskipting og vegalengdir
Aldursflokkaskipting og vegalengdir, bæði kyn:

  • 2,5 km: 12 ára og yngri (skemmtiskokk er í boði fyrir alla aldurshópa, en verðlaunapeningar bara fyrir 12 ára og yngri)
  • 5 km: 15 ára og yngri, 16 ára og eldri.
  • 10 km: 29 ára og yngri 30-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri.

Hlaupaleiðin verður bæði á götum og stígum umhverfis Blöndu.
Tímataka verður í öllum vegalengdum.
Hlaupið hefst á planinu fyrir framan Félagsheimilið á Blönduósi og endar einnig þar.
Keppendur í öllum vegalengdum hefja keppni samtímis.

Verðlaun
Verðlaunapeningur fyrir þrjú efstu sæti í hverjum aldursflokki (fyrir utan skemmtiskokkið). Allir keppendur sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarskjal með skráðum árangri.

Skráningargjald
Þátttökugjald er 1000 kr fyrir 16 ára og eldri en 500 kr fyrir 15 ára og yngri.

Nánari upplýsingar og skráning
Upplýsingar og skráning sendist á usah@simnet.is. Óskað er eftir forskráningu en annars hefst skráning kl. 10:00 á keppnisdag við rásmarkið.

 
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Add other HTML tags here for non-Java browsers. If possible, you should try to simulate something similar to the look and feel of the applet, even perhaps just a link to another page which displays the same text using static HTML. Java-enabled browsers will ignore anything here other than tags.