|
28. júní 2010 Unglingalandsmót - SkráningUnglingalandsmótið verður að þessu sinni í Borgarnesi helgina 30. júlí – 1. ágúst. Þar geta öll börn á aldrinum 11-18 ára keppt í hinum ýmsu greinum. Þetta er fjölskylduhátíð sem hefur skapað sér hefð í kringum verslunarmannahelgi. Keppnisgreinar á landsmótinu eru eftirtaldar: Frjálsar íþróttir, golf, glíma, hestaíþróttir, knattspyrna, körfuknattleikur, mótorcross, skák, sund og dans. Skrá þarf þátttöku til USAH fyrir 24.júlí n.k í e-maili USAH@simnet.is, í síma 452-4929 eða koma á skrifstofu milli kl: 16 – 17:00 alla virka daga. Koma þarf fram: Nafn keppanda, kennitala, keppnisgrein, símanúmer, foreldri/forráðamaður. Keppendur fara á ábyrgð foreldra/forráðamanna á mót þetta. USAH greiðir allan keppniskostnað fyrir keppendur sem skrá sig í gegnum skrifstofu USAH. Nánari upplýsingar einnig á www.umfi.is |
|