Ýmsir tenglar


Ungmennafélag Íslads

Íþrótta og Ólimpíusmband Íslands

 
Sunnudagurinn 05. september 2010
Ağalsíğa  /  Fréttaleit  /   

Mót sumarsins hjá USAH

Héraðsmótið verður haldið dagana 6. og 7. júlí n.k. á Blönduósvelli. Hefst mótið klukkan 18:00 báða dagana. Skráning á staðnum. Öllum félögum innan USAH er heimil þáttaka. Verðlaunaafhending fer fram að mótinu loknu. Keppnin er fyrir þá sem fæddir eru árið 2000 eða fyrr eða 10 ára og eldri. Nýjar reglur voru samþykktar á ársþingi USAH og hægt er að lesa þær á heimasíðu USAH.

 

Barnamót USAH verður haldið miðvikudaginn 21. júlí n.k. í Húnaveri. Hefst mótið klukkan 18:00 Öllum 10 ára og yngri (fædd 2000 eða seinna) er heimil þátttaka. Keppnisgreinar eru: 60m, 600m, langstökk og boltakast.

 

Minningarmóti USAH verður haldið á Vorboðavelli 10. ágúst n.k. og hefst mótið klukkan 18:00. Minningarmót þetta er haldið til minningar um Þorleif Arason kastara, en keppt verður í sleggjukasti, kringlukasti, spjótkasti og kúluvarpi. Skráning á staðnum.

 

Þristurinn verður svo haldinn á Blönduósvelli 11. ágúst. Það á eftir að koma í ljós hverjir keppa fyrir hönd USAH.

 

Ekki verða sameiginlegar æfingar hjá USAH í sumar.

 
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Add other HTML tags here for non-Java browsers. If possible, you should try to simulate something similar to the look and feel of the applet, even perhaps just a link to another page which displays the same text using static HTML. Java-enabled browsers will ignore anything here other than tags.