|
15. júní 2010 Reglugerð um Héraðsmót USAHReglugerð um Héraðsmót USAH 93. ársþing USAH haldið á Blönduósi 13. mars 2010 samþykkir eftirfarandi reglugerð um héraðsmót USAH utanhúss í frjálsíþróttum 1. grein Héraðsmót USAH í frjálsíþróttum er keppni milli aðildarélaga USAH í frjálsíþróttum. 2. grein a) Fjálsíþróttanefnd USAH gengst árlega fyrir mótinu á tímabilinu júní - ágúst b) Dagsetning mótsins er ákveðin af frjálsíþróttanefnd um vetur en hún getur hliðrað mótinu til um sumarið ef þurfa þykir. c) Mótið skal haldið á löglegum íþróttavelli innan sambandssvæðisins og skal undirbúningur og framkvæmd vera í höndum nefndarinnar eða þess aðila sem hún felur framkvæmd mótsins. 3. grein a) Keppt skal í eftirtöldum greinum og flokkum (aldur miðaður við fæðingarár): Konur: 100 m, 200 m, 800m, langstökk, hástökk, þrístökk, kúluvarp, spjótkast, kringlukast. Karlar: 100 m, 200 m, 1500m, langstökk, hástökk, þrístökk, kúluvarp, spjótkast, kringlukast. Meyjar 15 - 16 ára: 100 m, 200 m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast, kringlukast Sveinar 15 - 16 ára: 100 m, 200 m, 1500m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast, kringlukast Telpur 13 - 14 ára: 100 m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast. Piltar 13 - 14 ára: 100 m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast. Stelpur 10 - 12 ára: 60 m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast. Strákar 10 - 12 ára: 60 m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast. Óflokkaskipt: 4 x 100 m boðhlaup b) Röð keppnisgreina skal ákveðin af nefndinni og vera auglýst í upphafi móts. Nefndinni eða mótsstjóra er heimilt að færa greinar fyrirvaralaust milli daga og/eða breyta röð þeirra ef sérstök ástæða þykir til. c) Fjöldi umferða í kastgreinum, langstökki og þrístökki skal vera 4 fyrir alla keppendur. Í hlaupum skal nefndin/mótsstjórn raða í riðla ef þess er þörf. Tímar í hlaupum ráða úrslitum og ekki er um úrslitahlaup að ræða nema ef fyrstu tímar eru jafnir milli riðla. d) Einungis er hægt að keppa til stiga í þeim aldursflokki sem viðkomandi einstaklingur er í. Gestum er heimil þátttaka en keppa þá hvorki til stiga né verðlauna. 4. grein Frjálsíþróttanefnd USAH tilkynnir aðildarfélögum hvar og hvenær mótið skal haldið með tveggja vikna fyrirvara. Skráning er á staðnum en hvatt er til forskráningar á skrifstofu USAH. Skrá skal fullt nafn, fæðingarár og félag. Aðildarfélögum ber að útvega 1 starfsmann á mótið fyrir hverja 5 skráða keppendur árinu áður. Frjálsíþróttanefnd sér um að skipa greinarstjóra og áhöld. 5. grein a) Keppni milli félaga: Sex fyrstu í hverri grein fá stig fyrir sitt félag. 1. sæti fær 6 stig, 2. sæti 5 stig o.s.frv. Í boðhlaupi skal og vera sama stigagjöf. Verðlaun eru farandbikar er vinnst til eignar vinni sama félagið þrisvar í röð eða 5 sinnum alls. Það félag sem flest stig fær sigrar. Fái tvö félög eða fleiri jafnmörg stig skal það félag teljast sigurvegari sem fengið hefur fleiri gullverðlaun og ef það dugir ekki þá það sem hefur fengið fleiri silfurverðlaun o.s.frv. eins langt niður og þarf. b) Keppni milli einstaklinga: Veita skal þrjú verðlaun fyrir hverja grein og skulu það vera verðlaunapeningar. Stigagjöf skal vera sú sama og í a) lið nema í boðhlaupum þar er ekki um einstaklingsstig að ræða. Stigahæstu einstaklingar í hverjum flokki skulu hljóta verðlaunagrip til eignar. 6. grein Að öðru leyti skal framkvæmd mótsins svo og annað því viðvíkjandi t.d. áhöld, félagaskipti o.fl. vera samkvæmt reglum FRÍ. 7. gein Séu ákvæði í reglugerð eða lögum FRÍ ekki nógu skýr eða í þau vantar fyllri ákvæði um undirbúning eða framkvæmd mótsins og ágreiningur rís þar um skal hann meðhöndlaður á eftirfarandi hátt: a) Sé mót ekki hafið og hafi Frjálsíþróttanefnd tök á að fjalla um ágreininginn ræður úrskurður hennar. b) Hafi nefndin ekki tök á að fjalla um ágreininginn eða sé mót hafið ræður úrskurður yfirdómara. Frjálsíþróttaefnd skal síðan semja skýrari ákvæði um þessi ágreiningsatriði og leggja fyrir næsta sambandsþing til staðfestingar. 93. þing USAH haldið á Blönduósi 13. mars 2010 samþykkir nýja reglugerð um Héraðsmót héraðsmót USAH utanhúss í frjálsíþróttum. Tillagan samþykkt samhljóða. |
|