Ýmsir tenglar


Ungmennafélag Íslads

Íþrótta og Ólimpíusmband Íslands

 
Sunnudagurinn 05. september 2010
Ağalsíğa  /  Getraunir 1x2 

Hvöt

Getraunaleikur Hvatar
Vor 2006

ATH!
Þú getur líka skoðað getraunirnar á
www.hvotfc.is

Riðlar og staða
(Lokastaða riðlakeppni)

Lokastaðan í úrslitakeppninni

Bikarkeppnin úrslit !!!

Samanburður leikmanna

Hópar

Gollarnir sigurvegarar !

Hér kemur lokastaðan í Getraunaleik Hvatar og Blöndubikarnum. Það með er Getraunaleikur Hvatar kominn í sumarfrí en vonandi hefst hann aftur í haust þegar enski boltinn byrjar aftur að rúlla. Ekki er ennþá búið að ákveða hvenær uppskeruhátíðin verður en hún verður vandlega auglýst með góðum fyrirvara.
Fylgist með á tölvupóstinum ykkar, www.usah.is, www.hvotfc.is, www.blog.central.is/hvot_karlar og www.huni.is. Hún verður væntanlega auglýst á öllum þessum stöðum.

Að lokum viljum við óska sigurvegurunum til hamingju með glæstan árangur og hlökkum til að sjá ykkur sem flest á uppskeruhátíðinni.

Getraunanefndin


Gífurleg spenna í síðustu umferðunum

Þá er komið að loka umferðinni í Getraunaleik Hvatar. Spennan hefur aldrei verið meiri og eru margir sem að slást um efstu sætin. Það er nokkuð ljóst að margir tipparar eru nokkuð vel að sér í sænska boltanum eins og sást um helgina, tveir tipparar blönduðu sér heldur betur í toppbáráttuna með því að fá
12 rétta og vantaði aðeins herslumunin með 13. leikinn. Það dugar því ekkert minna en 13 réttir til að tryggja sér sigurinn í loka umferðinni.

Um helgina fer einnig fram úrslitaleikurinn í Blöndubikarnum en í honum mætast Espólín Mafían og Hlunkarnir. Gera má ráð fyrir jafn skemmtilegum úrslitaleik eins og um helgina hjá Liverpool og West Ham, þar sem Liverpool sigraði örugglega eins og öll heimsbyggðin veit.

Getraunanefndin


Sænski

Þá er komið að næst síðustu umferðinni í Getraunaleik Hvatar. Mikil spenna er í báðum riðlunum og er ljóst það verður hart barist í síðustu tveimur umferðunum.
Það er eins gott vanda sig vel núna af því að leikvika 19 er í erfiðari kanntinum. Þar eru nokkrir leikir úr sænska boltanum og væri betra að þekkja mann sem myndi þekka annan sem helst myndi búa í Svíþjóð. Þeir sem ekki búa svo vel gætu hugsanlegað leitað ráða hjá markmanni Hvatar, honum Mads. Hann er reyndar danskur en eftir því sem fréttir herma er hann nokkuð vel að sér í sænska boltanum.

Getraunanefndin


Allt í hnút á toppnum

Spenna eykst enn þegar úrslitakeppnin er hálfnuð, allt er í járnum í báðum riðlum og hafa margir augastað á fyrsta sætinu. En nú kætast eflaust einhverjir tipparar af því að nú eru nokkrir leikir úr sænska boltanum á seðlinum. Það er því mikilvægt að misstíga sig ekki á endasprettinum.

Nú er ljóst hvaða lið keppa til úrslita í Blöndubikarnum (í þetta sinn er dagsetningin rétt), en það er hin stórhættulega Espólín Mafía sem að mætir Hlunnkunum léttstígu í úrslitaleik. Leikurinn fer fram 20. maí eða í lokaumferð vorleik Hvatar getrauna.

Getraunanefndin


Leiðrétting

Tilkynning frá Getraunanefndinni

Rétt skal vera rétt....
Mistök voru gerð varðandi leikdag í undanúrslitum Blöndubikarsins. Hann átti EKKI að vera laugardaginn 22. apríl eins og missagt var fyrir síðustu helgi.
Heldur á hann að vera laugardaginn 29. apríl eins og ákveðið var áður en Blöndubikarinn hófst (sjá á blöðum um Blöndubikarinn). Er beðist velvirðinar á þessum misskilningi og þeim óþægindum sem þetta kann að hafa haft í för með sér.

Undanúrslit í Blöndubikarnum fara fram laugardaginn 29. apríl kl 13:00 og seinni leikirnir (ef þess þarf) 6. maí.

Stórlaxar ~ Espólin mafían
Fc Kambsfork ~ Hlunkarnir

Óskum við liðunum í undanúrslitum góðs gengis á laugardaginn og megi betra liðið vinna.

Getraunanefndin


Línurnar skýrast...

Núna fara línur að skírast í riðlunum tveim þ.e.a.s. hverjir það eru sem ætla sér að verða í toppbaráttunni og hverjir ekki. Ekki munaði miklu að 13 réttir kæmu í þriðja sinn um helgina en tveir hópar voru með 12 rétta og að þessu sinni voru það Fc Kambsfork og Stubbarnir.

Getraunanefndin


ooog hér var að berast frétt ...

Kæru tipparar GLEÐILEGT SUMAR og takk fyrir skemmtilegan getraunakeppni í vetur.

Nú er búið að draga í undanúrslit í Blöndubikarnum en leikirnir fara fram 29.
apríl.

Stórlaxar - Espólín Mafían

Fc Kambsfork - Hlunkarnir

Fyrri leikirnir fara fram 29. apríl eins og áður segir og seinni leikirnir fara fram 6. maí ef þess þarf.

Getraunanefndin


Baráttan byrjar í úrslitakeppninni

Þá er fyrsta umferðin í úrslitunum búin og náðu nokkrir góðu starti. Ekki gekk þó vel hjá þeim sem að fengu bónus-stigin eftir riðlakeppnina. Ekkert þeirra liða er í efstu sætunum og verða þau því að gera betur í næstu umferð.  

Getraunanefndin


Úrslit orðin kunn

Þá er það komið í ljós hverjir komust í úrvalsdeildina, hverjir enduðu í afturrúðubikarnum, hverjir komust í undanúrslit í Blöndubikarnum og síðast en ekki síst hverjir fengu bónusstigið margumtalaða. Næsta laugardag byrjar keppnin í úrvalsdeildinni og afturrúðubikarnum og við minnum á breyttan opnunartíma á USAH skrifstofunni 10:30 - 12:30

Getraunanefndin

Ein umferð eftir í undanriðlum

Spennan er nú í hámarki fyrir lokaumferðina, hverjir komast í úrvalsdeildina og keppa um sæmdarheitið Vorleiksmeistari Hvatar Getrauna vorið 2006. Hverjir ná bónus-stiginu margumtalaða? Einnig er hörð barátta um hverjir munu sitja eftir með sárt ennið og þar með keppa afturrúðubikarkeppninni. Um helgina er líka keppt í Blöndubikarnum 8 liða úrslit. Það getur allt gerst í loka umferðinni í riðlakeppninni en við minnum á við keppum í 6 vikur í úrslitum í úrvalsdeildinni og afturrúðukeppninni.

----Athugið Athugið Athugið Athugið Athugið-----

Skrifstofa Hvatar getrauna á Húnabraut 13 verður framvegis opin frá kl. 10:30 - 12:30 á laugardögum. Er þetta gert vegna þess að nú er búið að færa klukkuna í Evrópu fram um eina klukkustund. Það þýðir að lokað verður sölu leikja á enska seðilinum kl. 13:00 á laugardögum í staðinn fyrir kl. 14:00.

Getraunanefndin


Einn komst í 10 rétta.

Eitthvað var reyndist tippurum erfitt að hitta á réttu merkin á seðlinum um helgina. Skorið var ekki hátt en aðeins einn tippari var með 10 rétta en það var jafnframt hæðsta skorið. Eftir þessa umferð má segja að spennan hafi aukist til muna í riðlakeppninni og munar yfirleitt ekki miklu á efstu og neðstu liðunum í hverjum riðli fyrir sig. Seinni leikirnir í bikarnum fórum fram um helgina og var aftur jafnt í tveimur viðureignum og þurfti því að athuga hvort liðið skorði betur þegar það var skráð á útivelli. Einnig er búið að draga í 8 liða úrslitin en þau fara fram 8. apríl.

Getraunanefndin


Flestir með 9 og 10 rétta

Eitthvað var seðill vikunar að vefjast fyrir mönnum, hæsta skor helgarinnar var "aðeins" 10 réttir og voru nokkrir svo getspakir. Verður þetta að teljast frekar lélegt enda eru tipparar á Blönduósi að verða góðu vanir. Það er farið að styttast í annan endan á riðlakeppninni og þeir sem eru ekki í úrvalsdeildarsætum núna verða að fara að hisja upp um sig buxurnar ætli þeir ekki að missa af lestinni. Einnig verður spennandi að sjá hverjir ná í bónusstigið í hverjum riðli.

Aðeins náðu þrjú lið að tryggja sig áfram í Blöndubikarnum en það voru Jónurnar, Stórlaxar og Húsverðirnir sem sigruðu í sínum viðureignum. Hin liðin verða að etja keppi aftur um næstu helgi til að fá úr því skorið hverjir komast í 8 liða úrslit.

Getraunanefndin


Það borgaði sig að kaupa seðilinn, 13 réttir

Frétt helgarinnar er að það komu AFTUR 13 RÉTTIR í Getraunaleik Hvatar og verður það teljast frábært með svona stuttu millibili. Að þessu sinni voru það Gollarnir sem hittu á þessa 13 réttu, TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ GOLLAR. Það er greinilegt að það eru margir getspakir tipparar hér á Blönduósi og bíðum við spennt eftir því að sjá hver dettur næst í lukkupottinn. Við minnum enn og aftur á opnunartímann á skrifstofu U.S.A.H. á Húnabraut 13 en þar er opið frá kl 11:00 til 13:00, þar getið þið rennt seðlinum ykkar í gegnum sölukerfi íslenskra getrauna og þannig verið tilbúin að taká á móti stóra vinningnum. Við minnum á að næsta helgi er bikarhelgi og nú eru það 16 liða úrslit, margar skemmtilegar viðureignir framundan þar.

Þeir sem enn eiga eftir að ganga frá þátttökugjaldinu eru vinsamlegast beðnir um að gera það sem allra fyrst.

Getraunanefndin


Enginn með 13 rétta í 9. leikviku

Engin í hópleiknum var með 13 rétta í þetta skiptið en það gerist örugglega aftur. Línur eru farnar að skýrast í riðlakeppninni og þurfa þeir sem ekki eru í fjórum efstu sætunum að fara að herða sig ef þeir ætla að komast í úrvalsdeildina. Seinni leikirnir í Blöndubikarnum voru ótúlega jafnir og var Espólín mafían eina liðið sem vann sannfærandi sigur í sinni viðureign. Búið er að draga hvaða lið mætast í 16 liða úrslitum í Blöndubikarnum. Það er nokkuð ljóst að þar verða mjög spennandi viðureignir, rétt er að minna á að 16 liða úrslitin fara fram 18. mars.

Getraunanefndin

Einn með 13 rétta

Þá er annari umferð í riðlakeppninni lokið og voru 7 lið með 12 rétta, það er því ljóst að það stefnir í harða keppni í öllum riðlunum. Mikil barátta var einnig í fyrstu umferð í Blöndubikarnum en í honum náðu 10 af 15 liðum að komast strax áfram í næstu umferð. Jafnt var í 5 viðureignum og þurfa þau því að mætast aftur um næstu helgi en víxla þá um heimavöll. Ef aftur verður jafnt um næstu helgi þá gildir það hvort liðið fékk fleiri rétta þegar það var skráð á útvelli. Ef svo ólíklega vildi til að enn yrði jafnt eftir það þá gildir 8.
grein í leikreglunum. Ekki var mikið um óvænt úrslit í fyrstu umferðinni, helst ber þó að nefna að sigur Húsvarðanna varð mun stærri en menn áttu von á. Einnig kom það nokkuð á óvart að Stórlaxarnir (Gullfiskarnir) hafi náð jafntefli á móti da Melabraut á þeirra geysisterka heimavelli.

En hér er frétt helgarinnar, það þar var EINN TIPPARI MEÐ 13 RÉTTA, TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ RAUÐI HERINN - þannig að það getur borgað sig að senda röðina sína inn til íslenskra getrauna. Að þessu tilefni viljum við benda tippurum á að þeir geta sent röðina sína inn hjá okkur á skrifstofu USAH í gegnum tölvuna og greitt með Kredit-korti eða peningum. Með því að senda seðilinn í gegn hjá okkur fær Hvöt u.þ.b. 30% af hverri röð, ef það er hins vegar gert í næstu sjoppu (í kassa frá Ísl. getspá) fær félagið "aðeins" um 10% af hverri röð EF þið munið að merkja inn rétt félagsnúmer. Rétt er að taka það fram að félagið fær ekki % af vinningum en margir hafa haldið það í gegnum tíðina.

Getraunanefndin

Blöndubikarinn

Blöndubikarkeppnin hefst á laugardaginn, þetta er auka keppni sem við ætlum að hafa með hinni keppinni og kostar ekkert aukalega í hana. Veitt verða einhver smá verðlaun fyrir sigurvegarann í vor á uppskeruhátíðinni. Reglurnar eru örlítið öðruvísi en í riðlakeppninni. Viðureignir liðanna geta endað með jafntefli og ef það gerist þá keppa þau lið aftur helgina eftir o.s.frv (kynnið ykkur reglurnar). Bikardrátturinn og reglurnar eru hér --> Blöndubikarinn vor 2006 <--

Við hvetjum sem flesta til að koma í smá spjall og kaffi á laugardaginn, skrifstofan á Húnabraut 13 er opin á milli 11:00 og 13:00.

Getraunanefndin

Dregið í riðla

Þá er búið að draga í riðlana, það var gert í beinni útsendingu á veraldarvefnum www.kjalfell.is kl 21:00 mánudagskvöldið 20. febrúar 2006 að viðstöddu fjölmenni. Að sjálfsögðu var sýslumaðurinn og lögreglan á staðnum ásamt Jóni Erni, Brynhildi Erlu og Fúsa frá Gröf. Það er nokkuð ljóst á drættinum að þetta verður hörkukeppni og það er eins gott að misstíga sig ekki á leiðinni á toppinn. Fjögur efstu liðin í hverjum riðli komast í úrvalsdeildina en hin liðin keppa um Afturrúðubikarinn. Bikarkeppnin verður síðan kynnt síðar í vikunni en hún hefst um næstu helgi.
Leikvika átta kemur inn á morgun miðvikudag....smá seinkun á þessu á meðan leikurinn er að fara í gang.

Riðlar og staða

Getraunanefndin


31 lið skráð til leiks

Nú er getraunaleikurinn kominn á fullt, alls skráðu sig 31 hópur til í vorleikinn. Það má því búast við enn harðari keppni heldur en í haustleiknum. Rétt er þó að taka það fram að ennþá geta hópar skráð sig til leiks en þeir myndu þá fá stig samkvæmt 7. grein. Ef þið vitið um einhverja áhugasama tippara sem vilja vera með þá bendið þið þeim á þetta.

Dregið verður í riðla í vikunni og verður spennandi að sjá hvaða hópar lenda með sjálfum meisturunum í riðli. Riðlaskiptingin og næsta leikvika koma fljótlega inn á síðuna. Þeir hópar sem eiga eftir að borga skráningargjaldið er minntir á að greiða það n.k. laugardag.

Hópar vor 2006

Getraunanefndin

Nýjar reglur - vinsamlegast kynna sér þær
Skráningarblað Vor 2006

ATH !
Stigataflan sem og allar töflur verða framvegis birtar í PDF formi sem þýðir að þú þarft að hafa Adobe Acrobat Reader uppsett á tölvunni.
Það forrit er frítt á netinu og er hægt að nálgast hér.

get_adobe_reader.gif

 
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Add other HTML tags here for non-Java browsers. If possible, you should try to simulate something similar to the look and feel of the applet, even perhaps just a link to another page which displays the same text using static HTML. Java-enabled browsers will ignore anything here other than tags.