Ýmsir tenglar


Ungmennafélag Íslads

Íþrótta og Ólimpíusmband Íslands

 
Sunnudagurinn 05. september 2010
Ađalsíđa  /  Landsmót 

23. landsmót UMFÍ


Landsmót UMFI Egilsstöðum 12.-15. júlí.

Yfirlit yfir keppnina
Landsmótsnefnd USAH hafði veg og vanda af undirbúningi fyrir þátttöku USAH á Landsmótinu nú en í henni sitja Helgi Arnarson, Erla Jakobsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Nefndin gat nýtt sér krafta starfsmanns USAH, Guðbjörns Guðmundssonar og barst svo góð aðstoð úr ekki svo óvæntri átt, frá Hrefnu Kristófersdóttur. Síðar (á heimasíðunni) verður betur sagt frá aðdraganda og undirbúningi mótsins og ferðasagan rakin ásamt því sem gerðist “utan vallar”. Hér verður lítillega litið yfir þann árangur sem náðist í stafsetningu og frjálsíþróttum og sagt frá knattspyrnuleikjunum.

Stafsetning
Björgvin Þór Þórhallsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Brynjar Bjarkason skráðu sig á síðustu stundu í stafsetninguna og stóðu sig sæmilega. Björgvin lenti í 7. sæti með 42 stig af 50 mögulegum en Hugrún og Brynjar rétt fyrir neðan með tæplega 40 stig.Sigurvegarinn, ungt ofurmenni frá HSÞ fékk 46 stig. Alls voru um 30 keppendur.

Frjálsíþróttir
Jón Þ. Heiðarsson náði í úrslit í kringlukasti og lenti í 8. sæti. Hann komst áfram í 12 manna úrslit í kúluvarpi, kastaði þar 11,64m og lenti í 9. sæti.
Magnús Björnsson (Kínafari með meiru) sem hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið varð að hætta við keppni í spjótkasti. Hann keppti þó í kringlukasti en náði ekki í úrslit.
Þeir félagar eru búsettir í Reykjavík þar sem þeir starfa um þessar mundir og hafa æft með FH.

Knattspyrna karla á Eskifjarðarvelli
Knattspyrnan á Landsmótinu var hraðkeppni 7-manna liða (2x15 mín.).
Karlaliðin léku í tveimur riðlum og var USAH í B-riðli. Mótherjar okkar voru 2. flokkur Stjörnunnar sem keppti fyrir UMSK, Héraðssamband Vestfjarða og Geisli frá Súðavík. Stjörnupiltar voru erfiðustu andstæðingarnir í riðlinum en þó þeir hefðu nokkra efnilega leikmenn dugði það ekki til gegn öguðum og skynsamlegum leik USAH sem sigraði riðilinn örugglega með góðum stuðningi kvennaliðsins og annarra áhangenda.

Lokastaða Úrslit leikja í riðlinum:
Lið Stig
USAH 9
UMSK 6
HSV 3
Geisli 0



Riðill Leikur Úrslit
B Geisli-HSV 0-2
B UMSK-USAH 1-2
B USAH-HSV 2-0
B Geisli-UMSK 0-2
B UMSK-HSV 4-2
B Geisli-USAH 0-5

Úrslitaleikurinn fór fram á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum tveimur dögum síðar. Mótherjarnir voru gamalkunnir andstæðingar Hvatarmanna, Magni frá Grenivík sem lék fyrir HSÞ. Í úrslitaleiknum sást greinilega að þetta voru tvö sterkustu liðin í keppninni. USAH sótti meira en Magnamenn tóku fast á móti eins og þeirra er von og vísa og allt gat gerst. Undir lok fyrri hálfleiks kom sending frá Reimari á hægri kantinum inn á teiginn til Kidda. Hann tók ótrúlegt skot í slánna, þaðan fór boltinn í markvörðinn sem missti hann í netið. 1-0!
Í síðari hálfleik var mesta pressan farin af USAH-liðinu og þeir áttu mun meira í leiknum og nokkur færi. Einu sinni eða tvisvar munaði þó litlu að HSÞ tækist að lauma inn marki. Óskar Snær, yngsti leikmaður karlaliðsins gulltryggði svo sigurinn með öruggu skoti af stuttu færi eftir frábæran undirbúning þjálfaranna Helga og Sveinbjarnar. 2-0 sigur staðreynd og USAH komið með eitt gull og hundrað stig í stigakeppninni.

Karlaboltinn
eftir Brynjar Bjarkason

Aths. frá USAH:
Brynjar Bjarkason er sjálfstæður pistlahöfundur og ljósmyndari og ber sjálfur fulla ábyrgð á skrifum sínum. USAH ber því enga ábyrgð á pistlum Brynjars sem kunna að birtast hér í framtíðinni en þakkar þó kærlega hans framlag til vefsíðunnar.

USAH - UMSK

USAH byrjuðu leikinn af krafti og héldu boltanum vel innan liðsins en náðu ekki að skapa sér umtalsverð færi. Okkar menn voru þó þolinmóðir og bar það árangur undir lok fyrri hálfleiks þegar Joe brunaði upp hægri kantinn og sendi boltann inn á teig þar sem Kiddi var mættiur og potaði leðrinu inn. Seinni hálfleikur var vart byrjaður þegar varnarmenn UMSK misstu sjónar af Helga sem slapp einn einn í gegn og skoraði örugglega. Húnvetningar slökuðu á eftir markið og komust Kjalnesingar inn í leikinn og ákvað Joe að jafna leikinn eitlítið með sjálfsmarki. Þrátt fyrir ágætar tilraunir UMSK þá dugði það ekki til, lokatölur 2-1.

Maður leiksins: Kiddi barðist eins og ljón frammi og á þá nafnbót vel skilið.

USAH-HSK

Líkt og í fyrsta leiknum voru Húnvetningar ákveðnir í byrjun leiks og í fyrstu sókn leiksins skoraði Kiddi eftir góðan undirbúning Reimars á hægri kantinum. HSV áttu ekkert svar við sterkum leik USAH sem spiluðu einnar til tveggja snertinga reitabolta allan leikinn, biðu þolinmóðir eftir opnun hjá andstæðingunum og óðu hreinlega í færum en eitthvað létu mörkin standa á sér. Fúsi fyrirliði tók þá málin í sínar hendur og réðst á varnarlausan Vestfirðing. HSV var með enga varamenn og settu því sjúklinginn í markið. Fúsi var ekki lengi að nýta sér það og skoraði beint úr aukaspyrnu af löngu færi undir lok leiksins. Áhorfendur töluðu um að sjaldan hefði jafn lúalegt bragð sést á íþróttavelli. Lokatölur 2-0

Maður leiksins: Gummi liðstjóri var næstum því búinn að skora með skalla og á hann nafnbótina fyllilega skilið.

USAH - HSV

Húnvetningar sýndu snilldarleik gegn ráðalausum Geislamönnum og voru stundum eins til tveggja mínútna kaflar þar sem Geislamenn komu ekki við boltann. Sveinbjörn fór á kostum, skoraði 3 mörk og átti stóran þátt í hinum tveimur sem Kiddi skoraði. Í stöðunni 5-0 fór Gumma liðstjóra að leiðast þófið og skipti sjálfum sér inn á, öðrum leikmönnum til mikillar furðu. Hann var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn þegar hann komst einn í gegn en þá gáfu lappirnar sig og óttast læknar um að hans knattspyrnuferli sé lokið. Afgangnum af ferðinni eyddi hann á "pöbbnum" og drekkti sorgum sínum. Lokatölur 5-0

Maður leiksins: Sveinki fyrir sín 3 mörk og hann átti hreinlega völlinn.

Úrslitaleikur um 1. sætið

USAH - HSÞ

Úrslitaleikir knattspyrnusögunnar hafa oft verið daufir en þessi var með allra versta móti. USAH voru þó ívið sterkari og Kiddi (hver annar) braut ísinn með laglegu skoti og var þetta fimmta mark hans í fjórum leikjum. Þingeyingar gerðu sig lítt líklega í leiknum og undir lok leiksins potaði Óskar inn af stuttu færi. Segja fróðir menn að hann hafi, að meðtöldum æfingum, ekki skorað í 3 ár en hann valdi sjónvarpsleik til þess og tryggði USAH sanngjarnan sigur í mótinu. Lokatölur 2-0

Maður leiksins: Allt liðið átti stórfínan leik og ekki hægt að "pikka" einhvern úr.


Brynjar Bjarkason.

Knattspyrna kvenna á Reyðarfjarðarvelli
Kvennaliðin léku í einum fimm liða riðli á föstudeginum. Þá var karlalið USAH í fríi og sat í áhorfendabrekkunni og hvatti stelpurnar til dáða.
Þarna voru þrjú jöfn og sterk lið, USAH, UMSK (2. flokkur Breiðabliks), UÍA og eitt nokkuð gott lið, HSV (BÍ), og loks eitt slakt lið frá HSK sem greinilega var ekki í æfingu en tók þátt til að ná í stig fyrir Héraðssambandið Skarphéðin.
Fyrsti leikur USAH var við UMSK. Fyrir leikinn var kvíði í sumum stuðningsmönnum USAH þar sem Blikastúlkur voru fyrirfram álitnar mun sterkari. Annað kom á daginn. Þetta voru jafn sterk lið og leikur Hvatarsstúlkna beittari ef eitthvað var. Frábær frammistaða Signýjar í markinu var eftirtektarverð strax í þessum fyrsta leik og hélst svo út mótið. En jafntefli voru sanngjörn úrslit. Næsti leikur var mjög erfiður þar sem andstæðingarnir, HSV komst snemma yfir. Einu marki undir sóttu Hvatarstelpur ákaft og uppskáru loks jöfnunarmark þegar Erla skoraði úr vítaspyrnu.
HSK var slakasta liðið og þegar við mættum þeim höfðu bæði UMSK og UÍA unnið HSK með mörgum mörgum. Ef markahlutfall réði úrslitum þyrfti USAH því að sigra stórt í þessum leik. Það gekk því miður ekki. USAH vann 1-0 og var nokkuð liðið á leikinn þegar sigurmark Kristínar kom. Þær óðu reyndar í færum, t.d. skallaði Erla einu sinni í samskeytin! Í þessum leik sást líka hvað leikirnir reyndu mikið á leikmennina. Undir lokin voru jafnvel lykilleikmenn eins og Erla og Kristín orðnar mjög þreyttar. Úrslitin sem sagt viss vonbrigði þrátt fyrir að sigur ynnist.
Síðasti leikur USAH var ótrúlega spennandi. USAH þurfti sigur í þessum leik til að eiga möguleika á sigri í keppninni. UÍA hafði sýnt að það var svipað að getu og okkar lið þannig að búist var við miklum baráttuleik. Það kom líka á daginn. Í þessum leik áttu þær stórleik Signý og Jónína, Signý mjög örugg í markinu og Jónína sem lék aftast í vörn í stað Sóleyjar sem fór á miðjuna, klikkaði ekki í vörninni og skoraði svo fyrra mark USAH eftir glæsilega sókn. Kristín sem var allt í öllu í sóknarleik liðsins með sínum mikla hraða, bætti svo öðru marki við. 2-0, sanngjarn og öruggur sigur.
Af einhverjum ástæðum hafði síðasta leik riðilsins verið fundinn tími daginn eftir, á aðalvellinum. Þá kepptu UMSK og UÍA. Með sigri myndi UMSK verða jafnt USAH að stigum í efsta sæti en ef UÍA sigraði eða gerði jafntefli, stæði USAH uppi sem sigurvegari. Því miður fyrir okkur vann UMSK leikinn 1-0 og hreppti fyrsta sætið með betri markatölu en við. USAH hlaut silfurverðlaunin og 90 stig.

Lokastaða:   Úrslit leikja  
Lið Leikir Stig Mörk Leikir Úrslit
UMSK
4
8
10-1 USAH : UMSK 0 : 0
USAH
4
8
4-1 HSK : UÍA 0 : 5
HSV
4
6
4-3 HSV : USAH 1 : 1
UÍA
4
4
6-4 HSK : UMSK 0 : 8
HSK
4
0
0-15 HSV : UÍA 1 : 1
        USAH : HSK 1 : 0
        HSV : UMSK 1 : 1
        USAH : UÍA 2 : 0
        HSV : HSK 1 : 0
        UÍA : UMSK 0 : 1



Björgvin Þór Þórhallsson

Stuðningsaðilar:
Þessi fyrirtæki gáfu mat fyrir ferðina:
Mjólkursamlag Húnvetninga
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
Krútt brauðgerð ehf
Mata ehf
Kaupfélag Skagfirðinga
Kveikur ehf
Nói-Síríus hf
Sól-Víking hf
KEA Norðurmjólk hf


Að auki styrktu þessi fyrirtæki okkur:
Kaupfélag Húnvetninga
Laugamýri
Sölufélag Austur-Húnvetninga


Bestu þakkir fyrir stuðninginn!

Keppendur USAH á Landsmótinu

Knattspyrna kvenna
Brynhildur Erla Jakobsdóttir
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
Jónína Margrét Guðbjartsdóttir
Kristín Björg Jakobsdóttir
Gígja Blöndal Benediktsdóttir
Rannveig Gísladóttir
Birna H. Bergstað Þórmundsdóttir
Inga Hrund Kjartansdóttir
Guðrún Viktoría Jóhannsdóttir
Sóley Ósk Elídóttir
Signý Berndsen

Frjálsíþróttir
Jón Þorvaldur Heiðarsson
Magnús Björnsson

Stafsetning
Brynjar Bjarkason
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
Björgvin Þór Þórhallsson

Knattspyrna karla
Björgvin Þór Þórhallsson
Helgi Arnarson
Sveinbjörn Jón Ásgrímsson
Ólafur Benediktsson
Reimar Marteinsson
Magnús Edvaldsson
Óskar Snær Vignisson
Björgvin Karl Gunnarsson
Kristján Blöndal
Joseph Granack
Smári Stefánsson
Óli Aadnegard
Guðbjörn Guðmundsson

 
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Add other HTML tags here for non-Java browsers. If possible, you should try to simulate something similar to the look and feel of the applet, even perhaps just a link to another page which displays the same text using static HTML. Java-enabled browsers will ignore anything here other than tags.