Ýmsir tenglar


Ungmennafélag Íslads

Íþrótta og Ólimpíusmband Íslands

 
Laugardagurinn 19. maí 2012
Aðalsíða 

Velkomin á heimasíðu Ungmennasambands Austur-Húnvetninga   

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga USAH - Stofnað 30. mars 1912
Skrifstofa: Húnabraut 13, Blönduósi, Pósthólf 16, 540 Blönduós , Sími 452 4929, Fax 452 4929, tölvupóstur: usah@simnet.is.


Aðalbjörg formaður USAH tekur á móti styrknum. Ljósm: Ingibergur Guðmundsson
Aðalbjörg formaður USAH tekur á móti styrknum. Ljósm: Ingibergur Guðmundsson

USAH fékk styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra

Á fundi sínum, 2. apríl síðastliðinn, úthlutaði Menningarráð Norðurlands vestra verkefnastyrkjum til 68 aðila, alls að upphæð 23.900.000 kr. Ungmennasambandið fékk styrk að upphæð 300.000 til útgáfu Húnavökurits á 100 ára afmælis USAH.
:: meira

USAH hélt upp á aldarafmæli sitt á dögunum

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt upp á 100 ára afmæli sitt á dögunum. Sambandið var stofnað árið 1912 nánar tiltekið 30. mars. Haldin var afmælishátíð í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars og lögðu fjölmargir leið sína í húsið.
:: meira
Fyrrum formenn afhentu forláta Hvatningarbikar
Fyrrum formenn afhentu forláta Hvatningarbikar

Fjölmargir fengu viðurkenningar í afmælishófi USAH

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt upp á 100 ára afmæli sitt á dögunum. Um kvöldið var síðan hátíðarkvöldverður en þangað var um 140 manns boðið. Þar voru fjölmargar viðurkenningar til einstaklinga afhentar, gjafir til sambandsins afhentar.
:: meira

Sérstakt afmælistilboð á Húnavökuritinu í apríl

Sérstakt afmælistilboð verður á Húnavökunni í apríl. Húnavökuritið hefur komið út frá árinu 1961 og er hafsjór af fróðleik um allt milli himins og jarðar en þó sérstaklega um eitthvað sem tengist Austur Húnavatnssýslunni.
:: meira
Íslandsmeistarar í 4x100m 1962, Kristín Lúðvíksd., Helga Guðmundsd., Valgerður Guðmundsd, og Guðlaug Steingrímsd.
Íslandsmeistarar í 4x100m 1962, Kristín Lúðvíksd., Helga Guðmundsd., Valgerður Guðmundsd, og Guðlaug Steingrímsd.

100 ára afmæli USAH um helgina

Í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, verður hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars kl. 14:00-16:00.
:: meira
Íþróttamaður ársins Magnús Örn Valsson
Íþróttamaður ársins Magnús Örn Valsson

95. ársþing USAH var haldið um helgina

95. ársþing Ungmennasambands A-Hún. fór fram um helgina á 100 ára afmælisári sambandsins en það verður 100 ára þann 30. mars n.k. Um 30 fulltrúar voru mættir ásamt gestum frá ÍSÍ og UMFÍ. Fram kom á þinginu að mikil afmælisveisla verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars.
:: meira

Minningarmót USAH í kastgreinum er á morgun

Minningarmót USAH um Þorleif Arason verður haldið á Vorboðavelli þriðjudaginn 9. ágúst og hefst mótið kl. 18:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokki og eru keppnisgreinar kúluvarp, kringlukast, spjótkast og sleggjukast. Skráning verður á staðnum.
:: meira
Boðhlaupssveit USAH setti héraðsmet á landsmótinu
Boðhlaupssveit USAH setti héraðsmet á landsmótinu

Góður árangur keppenda USAH á Unglingalandsmóti UMFÍ

Fréttir frá framkvæmdastjóra USAH

Unglingalandsmót UMFÍ fór fram á Egilstöðum um verslunarmannahelgina og sendu Austur-Húnvetningar frábæra íþróttamenn á staðinn. Í allt fóru 45 keppendur, þar af voru 4 fótboltalið og fjöldi keppenda í frjálsum íþróttum, auk þess sem við áttum einn fulltrúa í skák.
:: meira

Síðustu forvöð að fá USAH galla

Nú er síðasti sjéns að fá galla fyrir Unglingalandsmótið en skrifstofan er opin í dag til kl. 14:00 en verður lokuð frá þeim tíma fram yfir landsmót.
:: meira

Úrslit í Blönduhlaupi USAH

Úrslit í Blönduhlaupi USAH þetta árið eru komin inn á netið á heimasíðuna www.hlaup.is. Metþátttaka var í hlaupinu en 55 manns tóku þátt og luku nánast allir hlaupinu.
:: meira

Foreldrafundur vegna Unglingalandsmóts UMFÍ

Foreldrafundur vegna Unglingalandsmóts UMFÍ verður haldinn mánudagskvöldið 25. júlí á skrifstofu Hvatar og USAH og hefst kl. 20:00.
:: meira

USAH gallarnir komnir og skráningu á landsmót að ljúka

USAH gallarnir eru komnir og hægt er að sækja þá á skrifstofu USAH milli kl. 10:00 – 14:00 alla vikuna. Þá viljum við einnig minna á skráninguna á Unglingalandsmót UMFÍ en síðasti möguleiki til skráningar er á morgun, miðvikudaginn 20. júlí.
:: meira
 
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Add other HTML tags here for non-Java browsers. If possible, you should try to simulate something similar to the look and feel of the applet, even perhaps just a link to another page which displays the same text using static HTML. Java-enabled browsers will ignore anything here other than tags.